Pore Refiner

pore refiner

Complexion Perfector
"Base" eða "primer"

Annað húðlag sem hylur og dregur saman svitaholur allt frá fyrstu meðferð.
Nýstárleg áferð sem er dúnmjúk viðkomu og gefur húðinni náttúrulega matt yfirbragð.
Hlutlaus litur sem hentar hvaða húðlit sem er. Fullkomnar förðunina. Yfirborðið verður lýtalaust.

Notkun: Berið á húðina eftir dagkrem og undir farða. Notið sem grunn fyrir farða fyrir langvarandi virkni, eða yfir daginn til að hressa upp á farðann.

Matifying Refiner Solution
Hátæknileg efnablanda sem dregur saman svitaholur sem eru opnar vegna offramleiðslu seytiefna og óhreininda. Dregur úr gljáa húðarinnar, gerir yfirbragðið matt og jafnt.
Umönnunarvara sem hentar sérstaklega vel blandaðri og olíukenndri húð, eða hvaða húðgerð sem er sem þjáist tímabundið af opnum svitaholum af ofangreindum ástæðum.

Notkun: Berið á andlit að morgni undir dagkrem.

Smoothing Refiner Solution
Hátæknileg efnablanda sem endurbyggir og þéttir svitaholur sem hafa stækkað vegna slöknunar húðarinnar.  Sléttar húðina og eykur útgeislun. Umönnunarvara sem hentar sérstaklega húð sem skortir teygjanleika og er því með opnar svitaholur, og húð sem er slök vegna aldurs eða af öðrum ástæðum.

Notkun: Berið á andlit að morgni undir dagkrem.

Refining Peel Off Mask
Umönnunarmaski sem fágar húðina og þéttir svitaholur. Nýstárleg filma fjarlægir öll óhreinindi og húðin verður samstundis hreinni, mýkri og með meiri útgeislun.

Notkun:
Notið einu sinni eða tvisvar í viku.
Berið jafnt, þunnt lag á andlitið.
Forðist augnumgjörðina.
Látið bíða í 20 mínútur og fjarlægið svo.

Heimasíða Sothys