Pedix

Pedix

Alhliða fótaumhirða

Uppgötvaðu unaðslegustu og áhrifaríkustu leiðina til að hlúa að fótum þínum. Vel hirtir fætur eru augnayndi, þeir eru þokkafullir, hafa aðdráttarafl og veita okkur meira sjálfstraust. Með PEDIX fótalínunni hefur alessandro tekist að sameina það sem til þarf í fullkomna fótalínu. Einstök vellíðan næst með nýstárlegum vörum: auðveldur áburður, mikil virkni, áhrifamikil vörn, náttúruleg virk innihaldsefni og frábær ilmur varanna gera þér samstundis gott. Leyndardómur nýju PEDIX fótalínunnar er alveg nýtt virkt innihaldsefni sem kallast "MarinaVitalâ". Það inniheldur fjölmörg næringarefni og vítamín og efni úr sérstakri gerð af þörungum.

Virku, náttúrulegu innihalds¬efnin eru t.d. prótín, steinefni, ólígó-frumefni, vítamín, amínósýrur og fjölsykrur - þau virka sem varnarlag fyrir húðina; varnir húðarinnar eru styrktar, eru rakamiklar, fá góða umönnun og eru verndaðar gegn sindurefnum (free radicals).

Leyfðu þér að njóta algjörlega nýrrar fótameðferðar! Veittu þér og fótum þínum meðferð sem er draumi líkust, silkimjúka húð og fullkomið útlit - fyrir þokkafyllri fætur en nokkri sinni fyrr.

Pedix

Heimasíða Alessandro